Einfalt og gott

Fyrst velurðu að skrá bíl eða íbúð í útleigu, skráir þig inn og fyllir út eyðublaðið.

Íbúðarauglýsingar

Til hægðarauka þá er gjaldskráin fyrir útleigu íbúða byggð á hæsta vikuverði með reikningum og sama fjárhæð er notuð sem lægsta vetrarleiguverð fyrir mánuð án reikninga (3 mánuðir +). Það þarf að bóka íbúð með minnst viku fyrirvara svo leigusala gefist tími til að sækja þær viðbótarupplýsingar sem hann þarfnast frá leigutaka og taka við greiðslu til staðfestingar á bókun.

Bílaauglýsingar

Gjaldskráin er sett upp sem verð pr. dag þar sem ráðlegt er að gefa 20% afslátt ef bíll er leigður í 6 vikur eða lengur. Hægt er að bóka bíl með minnst viku fyrirvara svo leigusala gefist tími til að sækja þau viðbótargögn sem hann þarfnast frá leigutaka og staðfesta bókun í framhaldinu. Leigusali getur svo fært inn bókanir og breytt auglýstu dagverði.

Aðgangur leigusala – Verð

Leigusalar fá fullan aðgang að dagatalinu, getur breytt þeim tímabilum sem íbúðin eða bíllinn er laus, fært inn bókanir og breytt verði. Hann fær öll skilaboð áframsend á netfangið sitt án afskipta vefsins. Leigusali fær bókunarbeiðni senda til sín og leigutaki veit ekki hver hann er fyrr en leigusali svarar honum. Leigusali greiðir fyrir hverja auglýsingu 12 Evrur og hægt er að endurnýja áskriftina árlega. Hér fyrir neðan er verðútreikningur fyrir íbúðir eins og hann er í upphafi skráningar.

Aðgangur leigutaka

Leigutakar þurfa ekki að skrá sig á vefinn heldur fylla þeir út bókunarformið sem er áframsent á netfang leigusala um leið og það berst. Afskipti vefsins eru engin eftir það.

Verðútreikningur leiguverðs í byrjun áskriftar:

© 2023 Leiga Spáni
Hönnun: Kalli á Spáni